Benjamín Kristjánsson. Blaðaúrklippur # 36318
- Regular
- 49.500 kr
- Sale
- 49.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Benjamín Kristjánsson. Blaðaúrklippur.
Tvær stórar og þykkar bækur þar sem safnað hefir verið saman blaðaúrklippum um og eftir séra Benjamín Kristjánsson. Ræður, greinar, þýðingar, laust mál og bundið. Ýmist eru greinarnar úr blöðum í Vesturheimi eða hérlendis. Þetta er merkilegt safn og einstæð heimild um ritstörf séra Benjamíns Kristjánssonar.
Benjamín Kristjánsson fæddist að Ytri-Tjörnum í Öngulstaðahreppi. Eiginkona hans var Jónína Björnsdóttir.
Séra Benjamín varð stúdent í Reykjavík árið 1924 og Cand. theol. frá Háskóla Íslands árið 1928. Hann dvaldi við Kaupmannahafnarháskóla veturinn 1925-1926 og fór í námsferð til London, Cambridge og Oxford árið 1936. Benjamín var prestur Sambandssafnaðar í Winnipeg í Kanada á árunum 1928 til 1932. Hann sat á Ytri-Tjörnum til ársins 1935, en síðan á Syðra-Laugalandi. Hann var settur prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 15. apríl 1964 til 1967. Hann kenndi bókleg fræði við Húsmæðraskólann á Laugalandi jafnhliða prestskap. Hann sinnti gjaldkerastörfum sama skóla og formennsku skólaráðs frá 1951. Síðara skeið ævi sinnar dvaldi hann í Reykjavík.
Benjamín ritaði fjögur bindi af Vestur-íslenskum æviskrám og Eyfirðingabók í tveimur bindum auk þess sem hann lét frá sér fara fjölda greina í hin ýmsu tímarit.