Bessi gamli # 52931
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Bessi gamli. Gamansaga úr Reykjavík eftir Jón Trausta.
Í Verði 1.árg 1917 / 1918 11. tbl er sagt frá Bessa gamla.
Síðasta bók Jóns Trausta heitir Bessi gamli. Ægir þar
saman viti og vitleysum eins og gerist. Hér skal sýnt
að skáldið sér glögt, það sem í kringum það er. Bessi
gamli er vitur karl og hefir lífsreynslu mikla. Hjónaefni, sem hann er velviljaður, heimsækja hann eftir að þau hafa birt trúlofun sína. Karl tekur þeim vel. „Þið megið engin börn eiga," mælti hann, — „eða þá bera þau út." Þau spvrja hann hvers vegna. Hann svarar:
„Hafið þið ekki séð, hvernig börnin alast upp í Reykjavíkurfrelsinu ? Langar ykkur til að bæta við þann hóp?
Eða haldi þið að börnin ykkar veröi undantekning
og ykkur verði auðið að ala þau upp öðruvísi en börn
annara eru alin upp? — Heimilin, sem fram á okkar
daga hafa verið gróðrarreitir siðferðisins, öruggustu vígi
aga og umvöndunar, máttarstoðir þjóðfélagsins, — eru
gliðnuð sundur, rifin í rætur niður. Húsbóndinn er í spilaklúbbnum — eða bæjarstjórninni. Húsfreyjan er á einhverjum fundinum. Vinnukonan er í dansskólanum.
Amma gamla kreppist uppi í rúminu sínu, því að alt
húsið er iskalt. Eldri börnin eru í ungmennafélögunum;
hin á götunni — í hálfgerðum óskilum.------------Það er
margt mannsefnið að alast upp í Reykjavík um þessar
mundir! Hafi þið gengið fram hjá húsi, sem verið er að
byggja — helst á kveldin, eftir að smiðirnir eru farnir
heim ? — Hafi þið þá ekki séð ofurlitla krakka-anga vera
að laumast burtu með spýtu og færa mömmu sinni ? Hafi
þið gengið fram hjá kolabingjum kaupmanna eða landssjóðs. — Þar eru litlu angarnir dálítið stálpaðri og eru
með poka, sem þeim er lagður til að heiman-------"
Þannig er Bessi látinn mæla. En húsráðendur og aðrir
eru frá heimilum sínum oft og tíðum í öðrum erindum
en Bessi nefnir. En í sama stað kemur með uppeldi og
eftirlit. Heimilið er heimilisleysi. Og þessum heimilum
vilja sumir þingmenn fela alt uppeldi barnanna. — Nei,
þá myndi Bessi gamli heldur vilja láta börnin út.
En hann er sérvitrari en þingmenn vorir.