Blikandi fjarlægð # 71855
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Blikandi fjarlægð. Minningar Stefaníu Sigurðardóttur. Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku tók saman.
Stefanía Sigurðardóttir, húsfreyja á Brekku í Mjóafirði, fæddist á Hánefsstöðum í Seyðisfirði 23. júní 1879. Þar ólst hún upp og átti þar raunar heima fram undir þrítugt er hún giftist Hjálmari Vilhjálmssyni á Brekku. Á efri árum skrifaði hún nokkra minningaþætti frá uppvaxtarárunum og ýmislegt fleira. Meðal annars þulur og kveðskap af öðru tagi. Sumar frásagnir hennar birtust á prenti. Og sérkennilegur samtalsþáttur – við brúður – var fluttur í barnatíma útvarpsins fyrir nærfellt hálfri öld. Að úr þessu yrði bókarkorn kom henni víst aldrei til hugar. Sú varð þó raunin. Það er bjart yfir þessum minningum móður minnar. Og best get ég trúað að margur hafi gaman af að fylgjast með henni stundarkorn um þau svið „blikandi fjarlægðar“ sem hún bregður birtu yfir í frásögnum sínum. Þess vegna eru þær nú, ásamt æviágripi og fjölda mynda, bornar á borð góðfúsra lesenda. Vilhjálmur Hjálmarsson. (Bókatíðindi 2005).