Bóndinn í Bráðagerði # 14162

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1954
Condition
Binding
Bóndinn í Bráðagerði. Skáldsaga eftir Álf utangarðs.


Í Verkamanninum 37. árg. 18. tbl. 1954 er fjallað um Bóndan í Bráðagerði. Þar segir :
"Þegar saga þessi var að koma
út sem framhaldssaga í Þjóðviljanum
á s.l. ári, vakti hún að vonum
allmikla athygli. Hér var
efni, sem mönnum var vel kunnugt, tekið nokkuð nýstárlegum
tökum. íslenzkir útgefendur hafa
lítið fengizt við „satíru", og ef til
vill ekki að ástæðulausu, því að
vart mun annað form skáldsagna
gerðar öllu erfiðara viðfangs.

Þeim mun meiri ástæða er til
að veita þessu verki athygli, þar
sem hér er farið inn á nýjar
brautir, og mér segir svo hugur
um, þó að ýmislegt megi að sögu
þessari finna, að höfundur hennar,
sem nefnir sig Álf Utangarðs,
og kvað vera þekktur rithöfundur,
íslenzkur, eigi eftir að geta
sér nafn á þessu sviði skáldlistarinnar,
og hann ætti engan veginn
að láta staðar numið við
þessa bók.

Sagan gerist að mestu í Reykjavík vorra daga og lýsir viðskiptum
bónda eins við hið opinbera,
ráðin öll og nefndirnar, skriffinnskuna
og spillinguna í opinberu
lífi. Mun margur mæla, að
vart sé ofsagt frá þeim ófögnuði.
Hitt mun mála sannast, að bóndinn sé tæpast nútímamaður, hann
er af annarri kynslóð og nokkru
eldri heldur en þeir, sem hann á
skipti við og það finnst mér meginókostur
sögunnar og finnst
hann gera ýmsa hluti hennar ósennilegri
heldur en ella hefði
verið og þurft hefði að vera.

Bókin er víða skemmtileg aflestrar
og þægileg dægrastytting.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.