Brautryðjandinn. Júlíana Jónsdóttir skáldkona # 71169

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Akranes
Date
1997
Condition
Binding
Brautryðjandinn. Júlíana Jónsdóttir skáldkona. Guðrún P. Helgadóttir skráði.

Júlíana Jónsdóttir var fyrst allra íslenskra kvenna að gefa út skáldrit á Íslandi. Ljóðabókin Stúlka kom út á Akureyri 1876. Hún bjó víða um land og flutti síðan til Vesturheims.




Júlíana Jónsdóttir var fædd 27. mars 1838 á Búrfelli í Hálsasveit. Hún ólst upp hjá föðurafa sínum og konu hans á Rauðsgili í Reykholtsdal.




Eftir að hafa unnið víða á bæjum í Borgarfirði frá unga aldri flytur hún um tvítugt í Akureyjar á Breiðafirði og var þar vinnukona í 14 ár hjá sr. Friðrik Eggertz.




Úr Akureyjum flytur hún í Stykkishólm, þar sem hún vann fyrir sér með ýmsum störfum.




Um 1885 flytur Júlíana síðan til Vesturheims. Fyrst dvelur hún í Norður-Dakóta og Winnipeg en flytur síðan í nágrenni Seattle. Vann hún fyrir sér með heimilishjálp og barnapössun. Síðasta ár ævinnar bjó hún á heimili íslenskra hjóna í Blaine.




Júlíana andaðist 12. júní 1917.




Árið 1876 gefur Júlíana út ljóðabókina "Stúlka" á eigin kostnað. Hún samdi einnig leikrit "Vig Kjartans Ólafssonar" og var það sviðsett í Stykkishólmi veturinn 1879. Lék Júlína aðalhlutverkið, Guðrúnu Ósvífursdóttur. Leikritið er til í óprentað.


Önnur ljóðabók Júlíönu "Hagalagðar" kom út 40 árum á eftir þeirri fyrri, 1916 í Winnipeg.
(www.dalabyggd.is)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.