Bréfabók Þorláks biskups Skúlasonar # 88879
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Bréfabók Þorláks biskups Skúlasonar.
Þorlákur biskup Skúlason sat Hólastól á árunum 1628-1656, næstur eftir afa sinn, Guðbrand biskup Þorláksson, sem andaðist 1627. Bréfabók Þorláks er því beint framhald Bréfabókar Guðbrands, sem Bókmenntafélagið gaf út á árunum 1919-1942, en sú bók var í raun hugsuð sem aukageta við Íslenzkt fornbréfasafn. Þó að Þorlákur biskup væri ekki jafnsvipmikill maður og Guðbrandur afi hans, farnaðist honum vel í embætti. Hann var laginn stjórnandi, réttlátur, mildur og mannúðlegur kirkjuhöfðingi, sem lét þó ekki ganga á rétt kirkjunnar. Prentverkið á Hólum stóð með miklum blóma um hans daga, en sendi nær eingöngu frá sér guðsorðabækur. Þorlákur biskup var einnig fornmenntamaður og studdi með ráðum og dáð ýmsa brautryðjendur á sviði íslenzkra fræða, sem sem Arngrím lærða og Björn á Skarðsá.
Bréfabók Þorláks biskups Skúlasonar er ómetaleg heimild um kirkjustjórn og aldarfar norðanlands á öðrum fjórðungi 17. aldar. Þó að útgáfa hennar sé sérstaklega sniðin við hæfi og þarfir sangfræðinga, á hún erindi til allra, sem láta sig þjóðleg fræði einhverju skipta. (Káputexti).