Bretarnir koma # 85742
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Bretarnir koma. Eftir Þór Whitehead.
Frásögnin hefst þegar tvö beitiskip og tveir tundurspillar ösla inn á Sundin við Reykjavík síðla nætur eða snemma morguns þennan maídag fyrir tæpum sextíu árum. Þá hefst atburðarás sem á eftir að gerbreyta Íslandi, ekki bara þannig að Íslendingar tóku að rétta við fyrir alvöru eftir kreppuna heldur líka þannig að sjónarmið breyttust, Ísland var ekki lengur einangrað eyland í miðju Atlantshafi heldur mitt í hringiðu stórátaka. Vald á Norður- Atlantshafi byggðist á því að menn hefðu ítök og aðstöðu á Íslandi. Í þessari bók eru raktar fyrstu aðgerðir brezka hersins á Íslandi og viðbrögð Íslendinga við hernáminu. Það er ekki að tilefnislausu að bókin hefst á ívitnun í Pál Ísólfsson dómorganista sem sagði að morgni 10. maí árið 1940 "Nú er allt breytt"