Brynjólfur biskup - kirkjuhöfðingi, fræðimaður og skáld # 88792
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Brynjólfur biskup - kirkjuhöfðingi, fræðimaður og skáld. Safn ritgerða í tilefni af 400 ára afmæli Brynjólfs Sveinssonar 14. september 2005. Ritstjórar Jón Pálsson, Sigurður Pétursson og Torfi H. Tulinius.
Brynjólfur Sveinsson biskup er heillandi persóna í Íslandssögunni. Hann var maður stórbrotinna andstæðna. Hugur hans hneigðist til fræðaiðkana í háskólum meginlandsins, og ljóst var að hann hafði alla burði til að skara fram úr á þeim vettvangi. Þó hlýddi hann boði konungs um að vígjast til biskups í Skálholti þar sem hann gerðist framkvæmdamikill og stjórnsamur kirkjuhöfðingi sem hafði varanleg áhrif á íslenskt þjóðfélag og menningu. En í augum nútímamanna virðist hann hafa komið fram af hörku við dóttur sína Ragnheiði í málum hennar og Daða Halldórssonar. Harmþrungin örlög hennar vörpuðu dökkum skugga á líf hans. Rit þetta varpar fjölþættu ljósi á manninn Brynjólf, á stjórnlist hans og fræðastörf, auk þess sem listum og menningu samtíma hans eru gerð skil. (Bókatíðindi 2006).