Dagbók í Íslandsferð 1810 # 63836

Regular
3,900 kr
Sale
3,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1992
Condition
Binding
Dagbók í Íslandsferð 1810. Eftir Henry Holland. Íslenzk þýðing og skýringar eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum.
Henry Holland ferðaðist um sumarið 1910 ásamt skozka vísindamanninum Sir George Mackenzie, læknastúdentinum Richard Bright og Ólafi Loftssyni, túlk og leiðsögumanni. Árið eftir, 1811, gaf Sir G. Mackenzie út vandaða bók um ferðina. Var hún prýdd mörgum myndum, sem þeir félagar höfðu teiknað hér. Varð ferðabók Mackenzie, ein af kunnustu bókum um ísland, kom alls út í 4 útgáfum í Englandi, en var auk þess þýdd á önnur mál.

Henry Holland var aðeins 22 ára, er hann ferðaðist hér. Hafði hann lokið prófi í læknisfræði þá um vorið, en næsta ár hlaut hann svo doktorsnafnbót fyrir rit um sjúkdóma á íslandi. Varð dr. Holland síðar mjög kunnur læknir í Englandi, líflæknir Viktoríu drottningar og Alberts prins. Einnig var hann mjög viðförull ferðamaður, en Íslandsferðin var fyrsta langferðin hans. Bar hann alltaf mjög hlýjan hug til Íslands og íslendinga eftir þessa ferð. Heimsótti hann landið aftur 1871, 83 ára að aldri, en hann andaðist 1873.


Dagbókin hefst í Orkneyjum, segir fyrst frá ferð þeirra þaðan til Reykjavíkur, en hingað komu þeir 7. maí. Dvöldust þeir síðan í Reykjavík til 21. maí og kynntust mönnum og málefnum, sóttu hér m. a. dansleik, komu á mörg heimili, einkum Holland, sem stundaði hér ofurlítið læknisstörf, fóru í mjög eftirminnilega heimsókn til Ólafs Stephensens í Viðey, o.f.l.
21. maí hófst 11 daga ferð þeirra um Suðurnes, síðan fóru þeir í mánaðar ferðalag um Borgarfjörð og Snæfellsnes og loks í þriggja vikna ferðalag austur fyrir fjall, komu á Þingvöll, að Skálholti, Geysi, riðu alla leið upp í Hrafntinnuhraun og gengu á Heklu. En á milli ferða dvöldu þeir jafnan í nokkra daga í Reykjavík.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.