Dalaætt - Guðnýjarætt # 63552
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Dalaætt - Guðnýjarætt. Umsjón Sigríður Lárusdóttir sem einnig ritar formála.
Í formála segir Sigríður frá því hvernig til kom að hún fór að stússast í útgáfu þessarar bókar. Sigríður segir; Í desember árið 1976 hljómaði í Ríkisútvarpinu auglýsing eitthvað á þá leið, að út væri komin Siglfirðingabók, þar sem rakið væri æviágrip Þorlandar ríka á Dalbæ og niðja hans í fjórða lið. Ég tilheyri fjórða liðnum og fór og keypti bókina. En ég varð fyrir vonbrigðum. Þar voru ekki talin öll börn og barnabörn Guðnýjar ömmu minnar og ýmislegt ranglega sagt um þau. Þá voru afi og amma mín sögð foreldrar barn annara hjóna. Verst var þó að systir mín var sögð dáin, en hún lifið á fjórða ár eftir útkomu bókarinnar. Mig langaði að leiðrétta þessar missagnir og hafði samband við ættingja, fór á Þjóðskjalasafn og leitaði heimilda. En leiðréttingar voru aldrei birtar og verður það ekki frekar rakið hér.
Og síðar segir Sigríður; Ýmislegt gott hefur gerst vegna villanna í Siglfirðingabók ´76. Við höfum haldið þrjú ættarmót og fyrirhugað er að halda það fjórða í sumar.