Í Dali vestur # 44568

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2011
Condition
Binding
Í Dali vestur. Eftir Árna Björnsson.
Árbók FÍ 2011 fjallar um Dalabyggð norðan Laxárdalsheiðar og einkum um svæðið milli Hvammsfjarðar og Gilsfjarðar. Hluti Stranda, frá Hrútafjarðarbotni og norður í Bitru kemur einnig við sögum.


Höfundur bókarinnar er Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur. Bókin er vönduð landlýsing þar sem sögu svæðisins eru gerð góð skil en söguríkt er það svo sannarlega. Þá eru í bókinni upplýsingar um fjölda skemmtilegra gönguleiða. Bókin veitir því lesandanum góða leiðsögn.


Höfundur heldur hér áfram yfirferð sinni sem hófst með Árbók FÍ 1997 þegar hann skrifaði um fjalllendið milli Mýra og Dala. Nú er för heitið alla leið austur í Bitrufjörð um eiðið sem tröllin í þjóðsögunni ætluðu að grafa sundur til að skilja Vestfjarðarkjálkann frá meginlandinu.


Bókin er prýdd fjölda ljósmynda sem flestar voru teknar sérstaklega fyrir bókina af Daníel Bergmann. Daníel annaðist einnig umbrot á bókinni auk vinnslu ljósmynda. Bókin hefur einnig að geyma vönduð kort sem teiknuð voru af Guðmundi Ó. Ingvarssyni. Jón Viðar Sigurðsson ritstýrði verkinu.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.