Dansað í háloftunum # 60992
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Dansað í háloftunum. Endurminningar Þorsteins E. Jónssonar flugkappa.
Flugmannsferill Þorsteins E. Jónssonar nær yfir 47 ár, næstum hálfa öld. Hann á að baki rúmlega 36 þúsund flugtíma, þar af um 450 tíma á Spitfire, helstu orustuvél Breta í stríðinu. Þorsteinn gekk í konunglega breska flugherinn í apríl 1940 og var í honum til ársloka 1946. Hann lærði að fljúga í hernum og tók þátt í loftárásum Breta í stríðinu, eins og innrás í Normandy og Norður-Afríku. Þorsteinn var sæmdur 6 heiðursmerkjum fyrir vasklega framgöngu í stríðinu.
Þorsteinn segist hafa verið með flugdellu frá því hann var smástrákur. Í upphafi stríðs hafi engin flugkennsla verið á Íslandi. Eina tækifæri hans til flugnáms hafi verið að ganga í breska flugherinn. Hann segir að erfitt sé að tiltaka hættulegasta flugið. Þetta hafi æði oft verið leikur upp á líf og dauða. Ég var lukkunnar pamfíll. Langflestir af félögum mínum, sem byrjuðu samtímis, lifðu ekki stríðið af," segir Þorsteinn.