Danskurinn í Bæ # 70401

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Hafnarfirði
Date
1966
Condition
Binding
Danskurinn í Bæ. Adam Hoffritz segir frá. Guðmundur G. Hagalín skráði.
Maður heitir Adam Hoffritz, danskur að kyni og þýzkur í fram ættir. Hann ólst upp í Lyngby við Kaupmannahöfn, sem nú er kjördæmi Per Hækkerup, en barst til Íslands rösklega tvítugur, gerðist vinnumaður hjá Degi heitnum Brynjúlfssyni í Gaulverjabæ, stundaði sjómennsku úr Baugstaðasandi og settist svo að á Selfossi, giftist ágætri konu frá Stokkseyri og hefur lagt á margt gjörva hönd um ævina. Adam hefur átt hér heima fjóra áratugi og jafnan verið svo heppinn að dveljast á Suðurlandi, ef undan eru skildar kynnisferðir í önnur héruð og veiðar. Hann er garpur að afli og áræði, hamhleypa til verka, þúsund þjalasmiður, gengur berhöfðaður í öllum veðrum og setur aldrei upp vettlinga. Hann blandar dönsku óspart saman við íslenzku í tali, enda fljóthugi, en er flestum hressari í máli, fyndinn, skömmóttur og ýkinn. Adam þessu mun í hópi vinsælustu samtíðarmanna og hann er harla athyglisverður og minnisstæður. Hann fremur kappsamlega laxadráp í tómstundum og hefur farið þeirra erinda allt norður í Laxá í Aðaldal, og eru þó hæg heimatökin í Árnesþingi. Má að því marka veiðifíkn mannsinns. (Alþýðublaðið 16. desember 1966.)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.