Dauðinn í Dumbshafi # 89592
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943.
Hér er sögð saga Íshafsskipalestanna sem sigldu á milli Íslands og Norðvestur Rússlands 1941 – 1943, sjóhernaði og öðrum átökum sem leiddu til þess að Ísland og Hvalfjörður urðu skyndilega miðstöð siglinga og flotaaðgerða. Þúsundir manna tóku þátt, oft með miklum blóðfórnum og þjáningum. Skipalestirnar frá Hvalfirði til Sovétríkjanna og atburðir í tengslum við þær, höfðu djúpstæð áhrif á ofsalegustu hernaðarátök sem mannkyn hefur staðið frammi fyrir. Valdamestu menn heimsins á þeim tíma beindu sjónum sínum að Íslandi, Hvalfirði og Íshafsslóðum Atlantshafsins. Afleiðinga þessa atburða gætir enn þann dag í dag. (Bókatíðindi 2011).