Draumur þinn rætist tvisvar # 6789

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Date
1989
Condition
Binding
Draumur þinn rætist tvisvar. Skáldsaga eftir Kjartan Árnason.


Draumur þinn rætist tvisvar er skáldsaga um glaðværð lífsins og hina óumflýjanlegu skugga, þroskasaga þar sem sérstaka athygli vekur nærfærin lýsing á sambandi drengs við ömmu sína. Aðalpersóna sögunnar er þátttakandi í leik lífsins uns henni er varnað þess. Sársaukinn flæðir inn og hið kyrra yfirborð sögunnar, kunnuglegt umhverfi, fær allt í einu annan lit.



Sagan er sögð af hógværð, raunsæi einkennir hana, en aldrei fjarri er grunur um aðra og dýpri merkingu hverdagslífsins líkt og örn fljúgi yfir og varpi skugga á veröld sem í fljótu bragði virðist áhyggjulaus.



Látlaus frásagnarstíll höfundar er trúverðugur og leynir einatt á sér. Undir lok sögunnar opnast lesandanum ný sýn og hann er reynslunni ríkari. (Káputexti)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.