Dropi úr síðustu skúr # 78473
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Dropi úr síðustu skúr. Ljóð eftir Anton Helga Jónsson.
Anton Helgi Jónsson fæddist 15. janúar 1955 á Sólvangi í Hafnarfirði. Fyrstu æviárin bjó hann í Hraunkoti við Hellisgerði en seinna í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu, þar sem móðir hans var húsvörður. Toni, eins og flestir kölluðu hann, gekk í Lækjarskólann, var í bekk hjá Herði Jafetssyni og vissi ekki betur en hann lifði í besta heima allra heima. Tólf ára fluttist hann til Reykjavíkur og bjó þar síðan í mörg mörg ár en flutti að lokum aftur í Fjörðinn og býr þar nú þegar þessi orð eru skrifuð.
Auk þess að fást við ritstörf hefur Anton Helgi Jónsson starfað við eitt og annað um ævina. Hann vann m.a. sem sviðsmaður hjá Leikfélagi Reykjavíkur í nokkur ár, vann líka á meðferðarstofnun fyrir unglinga og var seinna forstöðumaður þjónustumiðstöðvar fyrir fatlaða stúdenta í Stokkhólmi. Þá hefur Anton einnig unnið við auglýsingagerð og almanntengsl og rak um tíma fyrirtæki á því sviði. Anton lagði stund á heimspeki og bókmenntafræði við Stokkhólmsháskóla.
Í stofunni heima hjá sér hlustar Anton oft á skáldið Bob Dylan en ef hann er á gangi um Hvaleyrarholtið finnst honum gaman að heyra í hrafni. Anton Helgi Jónsson er kvæntur og fjögurra barna faðir. (www.anton.is).