Dulsmál 1600-1900 # 88777
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Dulsmál 1600-1900. Fjórtán dómar og skrá. Már Jónsson bjó til prentunar og skrifar inngang. Ljjósmyndir Helgi Bragason og Jóhannes Long.
Uppvíst varð um útburð á óskilgetnu barni nærri þriðja hvert ár að jafnaði á tímabilinu 16001900. Slík mál hétu á þeim tíma dulsmál. Oft voru konur einar að verki en iðulega komu feður barnanna nærri eða áttu frumkvæðið. Lagaákvæði sem giltu fram á 19. öld miðuðu við að það eitt, að barn fæddist látið, nægði til sakfellingar, nokkuð sem er einsdæmi í réttarsögu landsins. Refsingar voru grimmilegar og síðasta aftaka fyrir dulsmál fór fram árið 1792. Í þessari bók eru birtir í heilu lagi fjórtán dómar úr héraði þar sem málsatvik koma skýrt fram. Í inngangi er gerð grein fyrir slíkum málum í heild og réttarþróun rakin. Skrá fylgir yfir öll mál sem vitanlega komu fyrir rétt sem möguleg dulsmál, rúmlega 100 talsins. (Bókatíðindi 2000).