Dyr að draumi # 39156

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2005
Condition
Binding
Dyr að draumi. Ljóð eftir Þorstein frá Hamri.


Svör



Með stroknu fasi

ilma í dag af dásemd

hin sjálfbirgu svör.



Á morgun dreifa þau

hatri, sprengjum og heimsku.



Einungis eitt

svar mun á jörðu satt.



Það eigrar um rústirnar

orðlaust. Ég ber

kinnroða fyrir tilvist



þessa míns velviljaða, heilbrigða,

orðspaka, einskismegandi ljóðs.



Dyr að draumi



Opnar ég sá

dyr að draumi:



dyr inn í bláinn


og hljóp í ofvæni

hlaðbrekkuna þá



til fundar við ástleitið

auglit: það hló við mér

álengdar,

hvar sem ég stóð



og braut sér leið

inn í ljóð



sem talið verður framvegis

fjalla um allt



já, allt, allt, allt

annað ...

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.