Dýrafræði - Steinafræði # 84758
- Regular
- 69.500 kr
- Sale
- 69.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Saman í allgóðu bandi eru Dýrafræði og Steinafræði Gröndals.
* Dýrafræði samin af Benedict Gröndal. Með 66 myndum.
Í formála segir Benedikt Gröndal m.a."Bók þessi er svo lítil, að í hana kemst ekki nema lítið eitt af því sem dýrafræðin fæst við; eg hefi víðast getið um hversu margar tegundir telist af hverri deild, og í sumum flokkum meðfram til að minna á hversu fátt hér standi."
Síðan rekur hann hverjar bækur hann hafi notað sér helztar til stuðnings samningunni. Nefnir þar bækur eftir Lütkens, troschel og Schmarda. S. Nilson um fugla norðurlanda og H. Kröyer um fiskana í Danmörku. Dýrafræði Tenneys og ferðabók Preyers og Zirkels. Ferðabækur Eggerts Ólafssonar, Mohrs og Fabers.
Í lok formála segir Gröndal: "Ég hefi einnig verið svo heppinn að fá bókina prentaða með fegra letri en fyr hefir verið hér á landi (það er hið sama letur sem bækur eru prentaðar með í hinni nafnfrægu Claredon-Press í Öxnafurðu; einmitt með þessu letri er prentuð dýrafræði Tenneys, í Nýju Jórvík; það gengur um alla Norður-Ameríku og England; og með því eru margar prakt-útgáfur prentaðar á Þýskalandi og í Danmörku) - og ágæta prentara og er þeim það ekki sízt að þakka að svo fáar prentvillur eru." Reykjavík í Ísafoldarprentsmiðju og á hennar kostnað 1878.
* Steinafræði og jarðarfræði samin af Benedict Gröndal. Með 32 myndum. Reykjavík 1878. Prentuð í Ísafoldar-prentsmiðju og á hennar kostnað.