Eldgos 1913-2004 # 74299
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Location
Reykjavík
Date
2005
Condition
—
Binding
—
Eldgos 1913-2004. Höfundar eru Ari Trausti Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson.
Vandfundið er myndefni sem er jafn ægifagurt og það litaspil og umbrot sem blasa við þegar jörð rifnar og jarðeldar leysast úr læðingi. Í þessari glæsilegu bók er að finna ljósmyndir af öllum þeim eldgosum 20. aldar sem íslenskir ljósmyndarar hafa gert skil. Verkinu, sem er í stóru broti, er skipt í sjö aðalkafla sem hver er helgaður einni gosstöð; Kröflu, Öskju, Grímsvötnum, Heklu, Kötlu, Surtsey og Heimaey. Líflegir myndatextar Ara Trausta Guðmundssonar setja myndirnar í samhengi við eldvirkni og eldstöðvar en hann semur einnig inngang að hverjum kafla og fróðlegt yfirlit yfir sögu og eðli eldsumbrota og landmótunar á Íslandi. Ragnar Th. Sigurðsson annaðist myndaritstjórn og myndvinnslu og leitaði í smiðju allra fremstu myndasmiða þjóðarinnar á þessu sviði.