Eldhúsmellur # 87622
- Regular
- 2,900 kr
- Sale
- 2,900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Eldhúsmellur. Skáldsaga eftir Guðlaug Arason
"Við vitum að hjónabandið er ekkert annað en kaupsamníngur og hefur aldrei verið annað. Þar er verslað með öryggi, tryggð og penínga. Sá sem verri vöru hefur fram að bjóða verður undir, og undantekníngarlítið eru það við konurnar. Hjónabandið er í eðli sínu smáborgaralegt fyrirtæki, þar sem karlmaðurinn ræður yfir konunni. Í þetta eina ár sem ég bjó með honum Baldri sáluga, sællar minningar, fannst mér ég ekki vera annað en mella, hrein og bein mella. Ég lét af hendi kynlíf mitt, matseld og þvotta; hann átti íbúð og veitti mér fjárhagslegt öryggi. Í rauninni hafði hann miklu meiri þörf fyrir mig heldur en ég nokkurn tímann fyrir hann, og ég hugsa að karlmenn eigi yfirleitt erfiðara með að vera einir heldur en við konurnar. En okkar samband var eins og venjulegt fyrirtæki, sem hafði bókhaldið á milli fótanna á mér, þar voru allir hlutir annað hvort skrifaðir á debet eða kredit, þar var ávísanareikníngurinn sem tekið var út af ef hrikti í stoðum fyrirtækisins; forstjórinn hafði tækifæri til að fylgjast náið með rekstrinum, og þar fóru fram hin mánaðarlegu uppgjör ... sem fóru alltaf ákaflega í taugarnar á forstjóranum. Ég þekki konur sem gánga hreint til verks og selja sig karlmönnum fyrir beinharða penínga. Þær eru flestar ógiftar. En meirihluti giftra kvenna lifir á því að búa með karlmönnum og selja sig undir því yfirskini að þær séu giftar þeim.....
Níutíu og níu prósent af giftum konum á Íslandi eru eldhúsmellur ... ég fer ekki ofan af því."