Elliðaárnar # 88706
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Elliðaárnar. Ásgeir Ingólfsson tók saman.
Hér segir Ásgeir Ingólfsson sögu Elliðaánna að fornu og nýju og hér eru auk þess ítarlegar lýsingar á veiðistöðum í ánni. Í bókinni eru á annað hundrað ljósmynda í lit, meðal annars litmynd af hverjum veiðistað, ásamt mörgum svarthvítum myndum. Bókinni fylgir vandað kort af Elliðaárdalnum, og sýnir það nöfn hylja og kennileita við árnar.
Ásgeir Ingólfsson er fyrrum varaformaður og framkvæmdastjóri Stangveiðifélags Reykjavíkur og er hann manna kunnastur sögu ánna og veiði í þeim og miðlar hér meðal annars þekkingu afa síns og langafa sem stunduðu veiðar í ánum með breskum veiðimönnum snemma á öldinni sem leið.