Ellý # 70493

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2012
Condition
Binding
Elly. Ævisaga Ellyjar Vilhjálms. Margrét Blöndal skráði.
Elly Vilhjálms var um sína daga dáðasta söngkona þjóðarinnar og list hennar tengist því besta sem til er í íslenskri dægurtónlist. Söngurinn var fágaður, túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin mjúk og hlý. Svo vel vandaði hún til verka að allt hljómaði þetta eins og hún þyrfti ekkert fyrir því að hafa. Tilviljun réð því að Elly byrjaði að syngja á dansleikjum. Sjálf ætlaði hún sér að verða rithöfundur og leikkona, en sautján ára tók hún þátt í söngprufu sem KK-sextettinn efndi til og þá voru örlög hennar ráðin. Reynslan var hennar skóli og vinsældir hennar miklar þrátt fyrir andstreymið sem fylgdi því að fást við dægurtónlist á árum áður, þá list sem margir litu hornauga. Elly var dul að eðlisfari og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna. Því varð líf hennar stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti sjaldan um að svara. Hver var hún, þessi kona sem heillaði karlmenn á skemmtistöðum og vakti afbrýðisemi kvenna, gekk þrisvar í hjónaband, drakk forboðið snákablóð og smyglaði sögufrægum apa til Íslands? Margrét Blöndal segir ævisögu Ellyjar Vilhjálms og leitar víða fanga eftir heimildum. Hér er sögð heillandi saga af konu sem bjó yfir óræðri dulúð og töfraði marga, konu sem aldrei gafst upp, sjálfstæð til síðasta dags. (Bókatíðindi 2012).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.