Ennþá vakir vísnaglóð # 88765
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Ennþá vakir vísnaglóð. Ljóð og lausavísur eftir Kristján Runólfsson.
Kristján Runólfsson var Skagfirðingur og bjó lengst af á Sauðárkróki þar sem hann stofnaði meðal annars og starfrækti minjasafn. Hann var afkastamikið skáld og hagyrðingur og eftir hann liggur mikið safn fjölbreytts kveðskapar. Kristján var jafnvígur á náttúruljóð, gamankvæði, trúarljóð og tækifæriskveðskap af ýmsu tagi, auk lausavísna um daginn og veginn, skáldskapinn eða lífð og tilveruna. Bókin hefur að geyma úrval ljóða Kristjáns og er það von þeirra sem að útgáfunni standa að með henni verði verkum hans forðað frá þeim örlögum "að fjúka út í vindinn".
Ragnar Ingi Aðalsteinsson valdi ljóðin og ritar formálsorð.