Þetta eru asnar Guðjón # 80204
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Þetta eru asnar Guðjón. Skáldsaga eftir Einar Kárason.
Fyrsta skáldsaga Einars Kárasonar.
Við Guðný settumst hjá Tryggva sem sat þarna einn í nýjum grænum terlínbuxum og með samlita brennivínsflösku fyrir framan sig:
- Ég skildi kellinguna eftir heima, sagði hann hróðugur, sló mig klaufalega í bakið, gaut augunum á Guðnýju og sendi mér leyndardómsfullt augnaráð. Hann var kominn dáldið oní flöskuna og var alltaf að hvetja mig til að fá mér sopa dræ.
- Þannig er það best, þannig á maður að drekka brennivín maður, sko helst dræ úr pela, svona rassvasavolgt maður. Svo fór hann að segja mér hallærislegar frægðarsögur af sjálfum sér, hvernig hann hefði neglt kellingu þegar hann var í sveit í gamla daga, djöfull hafði hann svarað prófessornum flott þegar hann var í tíma um viðskiptarétt um daginn, „hann fríkaði gjörsamlega út maður!“, og allar flöskurnar sem hann hafði drukkið um æfina maður, stundum tvær og þrjár í einu og vaknað svo upp með tremma, séð pöddur og marflær uppum alla veggi, „ég hélt ég væri orðinn geðveikur maður!“