Eylenda II # 90845
- Regular
- 29,500 kr
- Sale
- 29,500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Eylenda II. Æviskrár og saga Flateyjarhrepps. Ritstjórn Þorsteinn Jónsson.
Eylenda segir frá mannlífi og örlögum við Breiðafjörð með nýjum hætti. Það er einstök heimild um jarðir og búendur í Flateyjarhreppi, ætt þeirra og afkomendur. Hér segir frá hlunnindum og sérstæðum atvinnuháttum, örnefnum og þjóðháttum, slysförum og munnmælum. Hátt í tvö þúsund myndir af bæjum, fólki og mannfundum, sem hvergi hafa birst, prýða ritið. Hér má heyra í viðómi sinfóníu mannlífsins í Flateyjarhreppi, hljóma í æviskrám alþýðufólks, kaupmanna, presta, bænda, sægarpa og sveitarómaga. Allt kryddað með frásagnarperlum þeirra sem þekktu fólkið og lifðu atburðina, svo sem þeirra Gísla Konráðssonar, Hermanns S. Jónssonar, Sveinbjörns P. Guðmundssonar og Bergsveins Skúlasonar. Ritstjórn og rannsóknir Þorsteins Jónssonar og samverkamanna hans gera verkið sérlega aðgengilegt. (Káputexti).
Hér er semsagt seinna bindi Eylendu, ágætt eintak, forlagsband. Fáséð bók.