Felsenborgarsögur # 51311

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1956
Condition
Binding
Felsenborgarsögur. Ævintýralegar sögur sæfarenda í Suðurhöfum. Sögur eftir Johann Gottfried Schnabel. Guttormur Guttormsson, Daði Níelsson og Ari Sæmundsson þýddu.


Bókaútgáfan Muninn auglýsir Felsenborgarsögur í Morgunblaðinu á útgáfudag bókarinnar, 18. september 1956.

Hinar frægu FELSENBORGARSÖGUR

koma í bókaverzlanir í dag í nýrri og vandaðri útgáfu, um 370
bls. að stærð, í vönduðu bandi og smekklegri hlífðarkápu.
Felsenborgarsögurnar voru prentaðar á Akureyri 1854 og
eru nú með allra torgætustu 19. aldar bókum, því að þær voru
bókstaflega lesnar upp til agna. Þýðinguna gerðu Ari Sæmundsson
og Guttormur Guttormsson.

Felsenborgarsögurnar eru fyrir löngu orðnar þjóðsagna„persóna", sem fáir hafa séð en allir vilja kynnast. Fjölmargir
íslenzkir rithöfundar hafa minnzt á þær í ritum sínum og hefur
það aukið forvitni manna á að kynnast þessari bók, enda eru
það ekki ýkjur þó sagt sé, að rifist sé um hvern skækil af bókinni,
hvar sem hann fyrir finnst. Nú gefst kostur á að lesa
bókina og hver svo sem dómur manna verður um hana, þá
verður því aldrei neitað að hún er rómantísk og skemmtileg.

Felsenborgarsögurnar eru nú prentaðar óstyttar og óbreyttar
og er engu stungið undir stól af þeim mergjuðu köflum, sem
helzt hefur verið vitnað til, þegar þessa bók hefur borið á góma.
En eins og geta má nærri, hafa þær tilvitnanir ekki alltaf verið
nákvæmar.

Felsenborgarsögurnar verða áreiðanlega aðalskemmtilestur
haustsins og ættu menn ekki að draga lengi að fá sér eintak.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.