Ferðabók Ólafs Olavius # 75242

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1964
Condition
Binding
Ferðabók. Landshagir í norðvestur-, norður- og norðaustursýslum Íslands 1775-1777. Ásamt ritgerðum Ole Henckels um brennisteinsnám og Christian Zieners um surtarbrand. Tekið hefir saman Ólafur Olavius. Steindór Steindórsson frá Hlöðum íslenzkaði.
Ólafur Ólafsson (eða Ólafur Olavius) (1741-1788) var rithöfundur, útgefandi og fræðimaður. Hann var lengstum búsettur í Danmörku.


Ólafur fæddist á Eyri í Seyðisfirði í Norður-Ísafjarðarsýslu. Hann var Ólafsson en latínuseraði nafn sitt að lærðra manna sið þeirra tíma. Olavius brautskráðist úr Skálholtsskóla og réðst til læknanáms hjá Bjarna Pálssyni, landlækni 1762. Hann hóf Háskólanám í Kaupmannahöfn 1765 og brautskráðist með Bachalárspróf í heimspeki árið 1768.


Ólafur skrifaði einkum rit og bækling á sviði athafnalífs til þess að hvetja Íslendinga til aukins framtaks. Merkustu rit hans eru Ökonomisk Reise igiennem Island, þar sem atvinnuháttum Íslendinga á seinni hluta 18. aldar var lýst. Ólafur var meðal stofnenda Lærdómslistafélagsins. Hann stofnaði og prentsmiðju í Hrappsey á Breiðafirði sem var fyrsta prentsmiðja á landinu sem fékkst við útgáfu á veraldlegum bókmenntum.


Ingibjörg, systir Olaviusar var amma Jóns Sigurðssonar forseta.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.