Ferðarolla Magnúsar Stephensen # 59238

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1962
Condition
Binding
Ferðarolla Magnúsar Stephensen. Jón Guðnason sá um útgáfuna.


"Magnús Stephensen var fæddur á Leirá í Leirársveit 1762, sonur Ólafs Stefánssonar sem síðar varð stiftamtmaður og konu hans, Sigríðar Magnúsdóttur. Hann var af helstu höfðingjaættum landsins og ólst upp með foreldrum sínum á Bessastöðum, Elliðavatni og víðar. Eftir nám í Skálholti fór hann til Kaupmannahafnar 1781 og lauk prófum í lögfræði og stundaði einnig málanám og nám í tónlist. Eftir heimkomuna 1788 varð hann lögmaður og bjó lengst af að Leirá og var settur landfógeti um skeið. Hann var hvatamaður að stofnun Hins íslenska landuppfræðingafélags 1794 og forseti frá 1796. Magnús var nær einráður um bókaútgáfu í landinu um langt árabil, og ritstörf og störf að útgáfumálum voru fyrirferðarmikil í ævi hans auk embættisstarfanna. Prentsmiðja á hans vegum var í Leirárgörðum, Beitistöðum og síðar í Viðey. Magnús var skipaður dómsstjóri í Landsyfirréttinum aldamótaárið 1800 og gegndi því starfi til æviloka. Hann bjó á Innrahólmi frá 1803-1813 en flutti þá til Viðeyjar og bjó þar til dauðadags, og þar rak hann mikinn búskap eins og á fyrri stöðunum. Hans er oft getið sem konferensráðs en þann titil hlaut hann 1816 af dönskum yfirvöldum, og doktor varð hann frá Hafnarháskóla 1819 fyrir rit sitt á latínu um gildandi lög á Íslandi. Magnús var mestur áhrifamanna á Íslandi um sína daga og boðberi upplýsingastefnunnar hér á landi. Með útgáfu sinni á ýmsum ritum, m.a. Klausturpóstinum og Minnisverðum tíðindum, Ræðum Hjálmars á Bjargi auk fjölmargra annarra rita ruddi hann brautina fyrir fjölmargar nýjar hugmyndir og ritaði um efni sem ekki hafði verið skrifað um á íslensku áður, náttúrufræði og sögu, m.a. eftirmæli 18. aldar, samdi Ferðarollu 1825-26, ferðadagbók frá Kaupmannahöfn. Hann var talsmaður mildari refsinga í landinu, framámaður í tónlistarmálum o.fl o.fl. Hann var mjög kappsamur maður og leit stórt á sig og forræðishyggja hans keyrði stundum úr hófi. Hann var ekki laginn við að koma sínum málum fram vegna ýtni sinnar og hann aflaði sér óvildarmanna fyrir þótta og stærilæti. Hann lést 1833."
Svavar Sigmundsson. www.landogsaga.is

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.