Fjandinn hleypur í Gamalíel # 68781

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1978
Condition
Binding
Fjandinn hleypur í Gamalíel. Sögur og minningarbrot eftir William Heinesen. Þorgeir Þorgeirsson þýddi. Kápumynd og skreytingar Zacharias Heinesen.



Fjandinn hleypur í Gamalíel er önnr bókin í hinu nýja ritsafni verka eftir William Heinesen í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Sagnasafnið gefur fjölbreytta mynd af smásagnagerð þessa einstæða höfundar.



Í fyrsta hlutanum er að finna ýmsar af viðamestu og þekktustu smásögum Heinesens, hina ísmeygilegu og snjöllu titilsögu, sögurnar Atlanta, Sálin og Jómfrúfæðing þar sem ein aðalpersónan er skáldið Einar Benediktsson.



Annar hlutinn er settur saman úr ljóðrænum endurminningabrotum, einkum frá uppvexti skáldsins í Færeyjum. Síðasti hlutinn er einnig sprottinn upp af slíku umhverfi, en þar eru fornar minningar og æskuleikir umsköpuð í ævintýri og skáldskap. Þessi hluti hefur að geyma þrjár efnisskyldar sögur, hverja annarri fegurri, og með honum er safnið tengt í býsna samfellda heild. (Káputexti)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.