Fjúk # 60192
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Fjúk. Ljóð eftir Steingerði Guðmundsdóttir.
Steingerður Guðmundsdóttir fæddist á Ísafirði 12. október 1912. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, sem þekktastur var sem Guðmundur skólaskáld, og kona hans, Ólína Þorsteinsdóttir. Steingerður var alla tíð ógift og barnlaus. Þegar Steingerður var á fyrsta ári fluttist hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur og átti þar heima síðan. Steingerður vann á yngri árum ýmis almenn störf, sótti einkatíma í íslensku og erlendum tungumálum, nam höggmyndalist hjá Einari Jónssyni 1931¬32 og var í leiklistarskóla Lárusar Pálssonar 1940¬41. Hún stundaði framhaldsnám í leiklist í New York 1943¬46, fyrsta árið í The American Academy of Dramatic Art, en tvö síðari árin í einkaskóla hins fræga rússneska leikstjóra Theodors Komissarjevskís. Jafnframt sótti hún tíma í ballett- og látbragðslistarskóla rússneska ballettmeistarans Mihail Mordkins. Þá kynnti hún sér leiklist í Svíþjóð haustið 1946 og Bretlandi haustið 1947. Í námi sínu gerði Steingerður monodramað, einleikinn, að sérgrein sinni og hélt sjálfstæða einleikssýningu í Iðnó, þegar hún kom heim frá námi vorið 1947. Sviðshlutverk hennar urðu eftirtalin: Anna í Orðinu eftir Kaj Munk hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1942¬43, María mey í Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson hjá L.R. 1948¬49 og Celía í Sem yður þóknast eftir William Shakespeare í Þjóðleikhúsinu 1952. Árin 1955¬60 starfaði hún sem leiklistargagnrýnandi; fyrst hjá Frjálsri þjóð, en síðar og lengst Sunnudagsblaði Alþýðublaðsins. Hún samdi fjölmarga einleiki og flutti sjálf í útvarp um þrjátíu ára skeið.