Fótspor á fjöllum # 55359

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2006
Condition
Binding
Fótspor á fjöllum. Sex valinkunnir ferðalangar segja frá útilegum og ævintýraferðum um Ísland. Páll Ásgeir Ásgeirsson ræðir við Gerði Steinþórsdóttur, Guðmund Hallvarðsson, Höskuld Jónsson, Ingvar Teitsson, Sigrúnu Valbergsdóttur og Valgarð Egilsson.
Hér birtast hressileg viðtöl við sex orðlagða ferðalanga sem hafa ferðast um Ísland alla sína ævi. Fallega myndskreytt bók í sama broti og árbók Ferðafélags Íslands. Gerður Steinþórsdóttir íslenskufræðingur er harðvítugur ferðamaður sem hefur vitjað margra fáförnustu staða á Íslandi og hefur kannað óbyggðir víða um heim. Valgarður Egilsson, læknir, skáld og fjallgöngumaður, er rómaður fyrir leiðsögn sína um Víkur og Fjörður. Guðmundur Hallvarðsson frá Búðum í Hlöðuvík er þjóðsagnapersóna meðal Hornstrandafara eftir fararstjórn þar í áratugi. Ingvar Teitsson læknir, sem stýrir Ferðafélagi Akureyrar, þekkir Norðurland öðrum betur. Harðfylgi á ferðalögum, víðtæk reynsla og skarpskyggni hafa aflað Höskuldi Jónssyni, fyrrverandi forseta Ferðafélags Íslands, virðingar í hópi ferðamanna. Og Sigrún Valbergsdóttir, leiðsögumaður og fjallageit, hefur legið úti á Hornströndum og Arnarvatnsheiði en Svarfaðardalur stendur hjarta hennar þó næst. (Bókatíðindi 2006).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.