Frá afdal til Aðalstrætis # 71696
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Frá afdal til Aðalstrætis. Ljóðmæli eftir Ingibjörgu Benediktsdóttur.
Ingibjörg Benediktsdóttir er fædd 11. ágúst 1885 á Bergsstöðum í Hallárdal, Austur-Húnavatnssýslu, og bjó þar til tvítugsaldurs. Hún lauk prófi frá gagnfræðaskólanum á Akureyri árið 1909 og kenndi m.a. við kvennaskólann á Blönduósi og síðar barnaskólann í Reykjavík. Árið 1917 giftist hún Steinþóri Guðmundssyni. Eignuðust þau fjögur börn. Þau bjuggu á Akureyri til ársins 1933 en fluttust þá til Reykjavíkur. Þar lést Ingibjörg eftir langa vanheilsu 9. október 1953.
Ingibjörg tók virkan þátt í félagsmálum, m.a. góðtemplara. Hún var í Kvenréttindafélagi Íslands og um skeið í stjórn þess. Hún flutti erindi á fundum og í útvarpi og skrifaði smásögur, ljóð og ritgerðir sem birtust í blöðum og tímaritum. Hún var í tvö ár ritstjóri tímaritsins Nýjar kvöldvökur sem kom út á Akureyri. Hún gaf út tvær ljóðabækur, Frá afdal – til Aðalstrætis (1938) og Horft yfir sjónarsviðið (1946). (www.skald.is)