Frá Hvanndölum til Úlfsdala # 77941
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Frá Hvanndölum til Úlfsdala. Þættir úr sögu Hvanneyrarhrepps. Sigurjón Sigtryggsson tók saman.
Í þessu ritverki ræðst Sigurjón Sigtryggsson í það stórvirki að segja sögu fólksins í einhverri afskekktustu og harðbýlustu sveit landsins. Hann notar sígilda aðferð íslenskra fræðimanna, ættfræðina, auk þess sem hann gerið haldgóða grein fyrir kjörum fólksins, búskaparháttum og öðrum ytri aðstæðum. Hér er hverjum bæ og koti lýst samkvæmt jarðabókum og öðrum heimildum, allt frá 1703, getið dýrleika jarða og hlunninda og hver einasti ábúandi er nefndur til sögunnar, ættir raktar, og allt það tínt til sem um hvern einstakan má finna í fátæklegum heimildum. En fyrst og fremst er þetta persónusaga, tilraun til að varðveita sögu venjulegs sveitafólks, fólks sem ekki skilur eftir sig stór spor í sögunni, en skapar hana þó með erfiði sínu. Þessi aðferð við söguritun hefur löngum verið okkur Íslendingum hugleikin, en hér er hún hafin í æðra veldi. (Káputexti).