Frá Íslandi til Vesturheims # 87575

Regular
2,900 kr
Sale
2,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2002
Condition
Binding
Frá Íslandi til Vesturheims. Saga Sumarliða Sumarliðasonar gullsmiðs frá Æðey. Hulda Sigurborg Sigtryggsdóttir tók saman.
Sumarliði Sumarliðason (1833-1925) frá Æðey við Ísafjarðardjúp, æskuvinur Matthíasar Jochumssonar skálds, braust til mennta af ótrúlegum dugnaði og lærði gullsmíði í Kaupmannahöfn. Kvæntist hann besta kvenkosti Vestfjarða, heimasætunni Mörtu í Vigur, gerðist óðalsbóndi þar og óþreytandi framfaramaður í öllum greinum. Fáir alþýðumenn á 19. öld lifðu jafn viðburðaríku lífi og Sumarliði. Lýst er hvernig hin glæsta draumsýn í Vigur hrynur út af alkóhólisma og lausung, hvernig Sumarliði berst við að höndla hamingjuna á nýjan leik uns hann, um fimmtugt, ákveður að flytjast til Ameríku með þriðju konu sína og ung börn og hefja þar nýtt líf. Sagnfræðingurinn Hulda Sigurborg hefur um árabil rannsakað ævi Sumarliða, byggða á yfirgripsmiklum dagbókum hans frá árunum 1851-1914. M.a. er greint frá afdrifum íslensku vesturfaranna, daglegu lífi þeirra, gleði og sorgum, og ekki síst hvernig þeim vegnaði í nýja landinu. Frásögnin er lífleg, grípandi og lýsir fjölbreyttu mannlífi og atorkusemi. Nefndir eru til sögunnar fjölmargir Íslendingar sem bjuggu í nágrenni við Sumarliða, lýst hvernig þeir hjálpuðu hver öðrum, hvernig þeir reyndu að halda í íslenskar siðvenjur en urðu smám saman að láta undan áhrifum hins nýja þjóðfélags. Sumarliði á fjölda afkomenda hér á landi og einnig vestanhafs. Bókin er myndskreytt og hefur hlotið lof gagnrýnenda. (Bókatíðindi 2002).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.