Frá Sýrlandi til Íslands # 37942
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Location
Reykjavík
Date
2007
Condition
—
Binding
—
Frá Sýrlandi til Íslands. Arfur Tómasar postula. Tómasarguðspjall, Tómasarkver, Tómas saga postula. Höfundar Jón Magnús Ásgeirsson og Þórður Ingi Guðjónsson.
Tómasarguðspjall, Tómasarkver og Tómas saga postula eru rit tileinkuð heilögum Tómasi postula. Sá meiður sem þau mynda í flóru frumkristinna rita er einstakur. Hér fæst innsýn í sum elstu varðveitt ummæli Jesú frá Nasaret þar sem upprisa Jesú frá dauðum er hvergi nefnd. Það er ekki píslarvætti frelsarans sem er lykill að guðsríkinu heldur þekking. Helsti þrándur í götu mannsins að sannri þekkingu reynast vera ástríður holdsins en ekki siðferðileg álitamál á vog syndar og aflausnar. Leiðin að þessari guðlegu þekkingu er ekki gjöf heldur þrotlaus barátta við öfl þessa heims, þar sem meinlæti og hófsemi verða tákn hinnar nýju kynslóðar Guðs. Í Tómasarkristni gefur að líta eina af elstu túlkunum á persónu Jesú frá Nasaret og orðum hans. Sú túlkun átti ekki upp á pallborðið hjá kirkjulegum yfirvöldum á fjórðu öld né lengi síðan. En þessi rit eiga erindi til samtímans þar sem þröngsýni fortíðar víkur fyrir nýjum viðhorfum. (Bókatíðindi 2007).