Frá torfbæ til tölvualdar á 50 árum # 75094

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Egilstaðir
Date
1990
Condition
Binding
Frá torfbæ til tölvualdar á 50 árum. Stefán Bjarnason í Flögu segir frá.



Stefán hefur um langt skeið haldið dagbækur um markverða atburði í sínu lífi og á Héraði. Einnig hefur hann skrifað þætti í Múlaþing, rit sem Múlasýslur gefa út, og fréttabréf úr Skriðdal sem um langt skeið hafa birst í vikublaðinu Austra. Auk þessa hefur Stefán skrifað fjöldann allan af minningar- og afmælis greinum um samferðarfólk sitt. Stefán gefur sjálfur út bókina sem prentuð er í Héraðsprenti á Egilsstöðum. Bókin er 253 blaðsíður prýdd fjölda mynda.


Stefán Bjarnason fyrrum bóndi í Flögu er nú aldurhniginn en ljón frískur maður. Hann var sveitar höfðingi sem gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir sveitunga sína. Stefán skrifar látlaust og gott mál og á þessu máli skýrir hann frá reynslu sinni, vonum og störfum á 50 ára búskaparferli. Á síðunum birtist einnig fjölskylda hans og fjölmargir sveitungar og samferðarmenn við störf og skemmtan. Stundum berst sagan út fyrir Skriðdalinn niður til Reyðarfjarðar suður á land og til Svíþjóðar.


Í bókinni er rakin þróunarsaga af vænu býli austur á Héraði. Framfaraskref eru tímasett og skýrt með hverjum hætti þau voru stigin. Einnig er áhugavert að fylgjast með höfundi, fólki hans og sveitungum á þessum síðum. Þarna segir frá fólki sem skapar sér sjálft lífsnautnir og gagnsemdir. Gerir vísur, leikur og syngur, snýst við sauðkindur, kýr og hesta. Einnig segir frá innreið tækninnar í íslenskan landbúnað. Frá torfbæ til tölvualdar er því búskaparsinfónía með upplyftingu.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.