Fransí biskví # 85957
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Fransí biskví. Frönsku Íslandssjómennirnir. Elín Pálmadóttir tók saman.
Frakkarnir eru komnir!” hrópaði fólkið í sjávarþorpunum á Íslandi þegar frönsku skúturnar birtust undir hvítum seglum við sjónarrönd. Um þriggja alda skeið héldu fjölmargar franskar fiskiskútur til þorskveiða á Íslandsmiðum. Vistin um borð, frá því lagt var upp síðla vetrar þar til snúið var heim undir lok sumars, fól í sér harðræði og vosbúð, en ávinningurinn var mikill þegar vel veiddist, skaut stoðum undir þorp og borgir og dugði fjölskyldunum heima til að þrauka eitt árið enn. Frönsku sjómennirnir, sumir vart af barnsaldri, komu sjaldan í land nema eitthvað amaði að. Engu að síður voru talsverð samskipti við landsmenn og hér voru reistir franskir spítalar og grafreitir helgaðir þeim sem áttu ekki afturkvæmt.