Frásagnir um Ísland # 75243

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1966
Condition
Binding
Frásagnir um Ísland. Niels Horrebow segir frá því helsta sem hann sá á ferðum sínum um Ísland. Steindór frá Hlöðum íslenskaði og ritar formála.
Niels Horrebow fæddist í Kaupmannahöfn árið 1712. Hann nam stjörnufræði og stærðfræði um skeið en lagði síðan stund á lögfræði og varði doktorsritgerð í fræðum þeim. Árið 1749 var hann sendur á vegum danska Vísindafélagsins til Íslands til að gera ýmsar athuganir og lýsingar á landinu, náttúrfari þess og atvinnuháttum. Hér dvaldi hann í tvö ár við frekar rýran kost. Hann hafði lélegan tækjabúnaði og lítið fé til ferðalaga. Horrebow var kallaður heim, þó með fullri sæmd fyrir störf sín. En í hans stað tóku Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson að rannsaka landið á vegum danska Vísindafélagsins. Horrebow skrifaði bók er heim kom og kom hún út árið 1752.


Rit Horrebows var einskonar varnarrit til að hrekja óhróður um Ísland sem komið hafði fram í bók eftir þýskan höfund að nafni Johann Anderson. Hafði hann skrifað bók um Ísland og byggði hann fróðleik sinn um Ísland á frásögnum danskra kaupmanna og sjómanna sem sigldu milli Íslands og Gluckstad. Þessi bók kom út í danskri þýðingu árið 1947 og var mikið ýkjurit.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.