Frjáls vilji # 37380

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Ísafjörður
Date
1935
Condition
Binding
Frjáls vilji. Úr ritum Martinusar 1-2. Óskar Jensen þýddi og sá um útgáfuna.
Martinus Thomsen eða Martinus (11. ágúst, 1890 – 8. mars, 1981) var danskur rithöfundur og dulhyggjumaður. Martinus fæddist inn í fátæka fjölskyldu og ólst hann upp hjá frænda sínum og frænku. Móðir hans var ógift ráðskona á herragarði og var vinnumaður að nafni Thomsen skráður faðir en Martinus taldi það faðerni ekki rétt og reyndi mikið til að losna við Thomsen ættarnafnið. Hann var í nokkur ár í barnaskóla en naut ekki annarrar menntunar. Hann var lengi starfsmaður í mjólkurbúi.


Árið 1921, þegar Martinus var um þrítugt varð hann fyrir andlegri vakningu. Hann helgaði eftir það líf sitt því að skapa alheimsvísindi (d. kosmologi) og skrifaði fjölda bóka og greina. Meginverk hans nefnist Livets Bog (Bók lífsins) i sjö bindum. Heildarverkið ber yfirtitilinn "Þriðja Testamentið".


Alheimsvísindi Martinusar er sýn á lífið og tilveruna. Alheimsvísindin innihalda tilvísanir í Jesú Krist en er frábrugðin hefðbundinni kristinni trú. Eitt af því sem einkennir verk hans eru úthugsaðar táknmyndir eða symbólískar teikningar sem finna má í bókum hans með nákvæmum útskýringum á þýðingu hverrar um sig.


Martinus kom fyrst til Íslands 1952 í boði Guðspekifélagsins og var það í fyrsta skipti sem hann fór út fyrir Danmörku. Hann kom sex sinnum til Íslands.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.