Ég geng frá bænum # 67555

Regular
3,900 kr
Sale
3,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Akranes
Date
1985
Condition
Binding
Ég geng frá bænum. Kvæðabók. Kvæði eftir Guðnýju Beinteinsdóttir. Sveinbjörn Beinteinsson ritar formála.
Þetta er eina bók Guðnýjar Beinteinsdóttur.
Í Grafardal í Borgarfirði stóð samnefndur bær. Þar bjuggu hjónin Helga Pétursdóttir og Beinteinn Einarsson. Börn þeirra urðu átta og hneigðust öll að ljóðagerð. Út eru komnar ljóðabækur eftir Pétur, Einar, Sigríði og Sveinbjörn. Nú bætist við ljóðabók eftir Guðnýju Beinteinsdóttur. Hún var fædd í Grafardal 28. apríl 1915. Ung að árum flutti Guðný til Reykjavíkur og starfaði þar lengst af síðan. Hún var fremur hlédræg að eðlisfari og flíkaði lítt hugsunum sínum. Víst er þó að hugur hennar stóð til hjúkrunarstarfa en heilsa hennar leyfði ekki að hún stundaði þau störf. Guðný var minnug og hafði góðan skilning á því sem hún las, einkum skáldskap. Hún var næm á tónlist og hafði vafalítið hæfileika á því sviði. Hún var vel hagmælt og átti létt með að kasta fram vísum. Á seinni árum rifjaði hún upp ljóð sín og bætti nýjum við. Þessi bók inniheldur helstu ljóð hennar og vísur.
Guðný andaðist 29. maí 1968. (Káputexti).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.