Í garði Sæmundar fróða # 87952
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Í garði Sæmundar fróða. Fyrirlestrar frá ráðstefnu í Þjóðminjasafni 20. maí 2006. Ritstjórar Gunnar Harðarson og Sverrir Tómasson.
Árið 2006 héldu Oddafélagið, Árnastofnun og Heimspekistofnun ráðstefnu um Sæmund fróða í tilefni af því að liðin voru 950 ár frá fæðingu Sæmundar (1056–1133). Í fyrri hluta bókarinnar eru prentuð erindi frá ráðstefnunni, en í seinni hlutanum er birt Ævi Sæmundar fróða eftir Árna Magnússon sem hefur ekki áður komið út á íslensku.
Í skrifum fræðimanna undanfarna áratugi hafa komið fram nýjar hugmyndir um Sæmund, nám hans og framlag, og hafa þær leitt til endurskoðunar á ýmsum atriðum sem snerta sögu hans. Greinarnar í bókinni takast á við þessar hugmyndir hver með sínum hætti.
Höfundar og þýðendur efnis eru: Árni Magnússon, Edward Booth, Garðar Gíslason, Gottskálk Jensson, Gunnar Harðarson, Helgi Skúli Kjartansson, John Marenbon, Sverrir Tómasson og Þorkell Örn Ólason.