Gengin spor # 88754

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Minningarsjóður Hlöðvers Bjarnasonar, 1949.
Date
Condition
Binding

Gengin spor. Ljóð eftir Guðrúnu Árnadóttur frá Oddsstöðum. 
Gott eintak, forlagsband. Árituð.

Guðrún Árnadóttir er fædd 15. október árið 1900 að Oddsstöðum í Lundarreykjadal og ólst þar upp til ellefu ára aldurs, en þá lést faðir hennar. Eftir það bjó hún með móður sinni á ýmsum stöðum í Borgarfirði.

Guðrún naut ekki skólamenntunar utan barnafæðslu, en var fróðleiksfús og lærði ung að leika á hljóðfæri. Árið 1917 fluttist hún til Reykjavíkur með móður sinni og vann þar sem verkakona en var í síld á sumrin.

Árið 1922 giftist Guðrún Bjarna Tómassyni sjómanni og bjuggu þau í Reykjavík. Þau eignuðust ekki börn en tóku kjörson. Hann fórst í bílslysi rúmlega tvítugur að aldri árið 1949.

Guðrún hafði áhuga á þjóðmálum, var róttæk í skoðunum og starfaði m.a. í Alþýðuflokknum. Hún hafði yndi af alþýðukveðskap og var í stjórn Kvæðamannafélagsins Iðunnar.

Eina ljóðabók Guðrúnar er Gengin spor sem kom út árið 1949 og hún tileinkar minningu sonar síns. Áður höfðu birst nokkur ljóð eftir hana í Borgfirskum ljóðum og einnig í blöðum.

Guðrún lést í Reykjavík 14. apríl 1968. (www.skald.is)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.