Gestur Pálsson. Rit hans í bundnu og óbundnu máli # 45941
- Regular
- 39.500 kr
- Sale
- 39.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Gestur Pálsson. Rit hans í bundnu og óbundnu máli. Útgefendur Arnór Árnason og Sig. Júl. Jóhannesson og rita þeir formála og um ævi Gests Pálssonar.
Gott eintak. Fáséð Vesturheimsprent.
Gestur Pálsson fæddist árið 1852 að Miðhúsum á Reykjanesi í Reykhólahreppi og hefur honum verið reistur minnisvarði við þjóðveginn ofan við bæinn. Hann varð stúdent úr Lærða skólanum 1875 og hóf síðan að nema guðfræði við Hafnarháskóla en hvarf frá námi án þess að ljúka prófi. Eftir námsdvölina í Kaupmannahöfn dvaldi hann nokkur ár í Reykjavík og fékkst þá meðal annars við kennslu og skrifstofustörf. Þá ritstýrði hann einnig blaðinu Suðra.
Gestur var einn af frumkvöðlum raunsæisstefnunnar á Íslandi og fékkst jafnt við smásagna-, ljóða- og skáldsagnagerð. Hann var einn Verðandimanna sem svo voru kallaðir vegna þess að þeir gáfu út tímaritið Verðandi 1882 þar sem þeir birtu eftir sig verk í anda raunsæisstefnunnar. Gestur flutti vestur um haf árið 1890 og tók við ritstjórn Heimskringlu, blaðs Íslendinga.