Geðveikt með köflum # 79571

Regular
2,900 kr
Sale
2,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2018
Condition
Binding
Geðveikt með köflum. Sigursteinn Másson segir frá.
,,Ég vakna einn upp á ókunnum stað og hef enga hugmynd um hvar ég er. Bætir ekki úr skák að ég er þungur og lyfjaður og á erfitt með að standa upp úr rúminu. Herbergið er dimmt." Þannig hefst einstæð frásögn Sigursteins Mássonar um lífshlaup sitt þar sem sannarlega hafa skipst á skin og skúrir. Sigursteinn var aðsópsmikill fréttamaður á sínum tíma og lét talsvert að sér kveða í fjölmiðlum. Þá hvarf hann af skjánum og af þjóðlífsvettvangi, en segir nú söguna af þeim hremmingum sem hann gekk í gegnum. Af mikilli einlægni, hispursleysi en líka kankvísi fjallar Sigursteinn hér um andleg veikindi sín, hvernig hann sá og heyrði samsæri í hverju horni, um stríðið í Kosovo þar sem Sigursteinn var einna fyrstur vestrænna fréttamanna á staðinn, Guðmundar og Geirfinnsmálin og þátt þeirra í veikindunum. Og þegar hann fór fram á við Davíð Oddsson forsætisráðherra að fá einkaþotu til að komast úr landi og fjármagn til uppihalds að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Geðveikt með köflum er áhrifamikil frásögn samtímamanns um veikindi og tvísýna baráttum um andlega heill og velferð, og hvernig honum tókst, með hjálp góðra manna og kvenna að ná tökum á geðsjúkdómi sínum.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.