Goðorð og goðorðsmenn I-III # 88768
- Regular
- 95.000 kr
- Sale
- 95.000 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Goðorð og goðorðsmenn I-III. Eftir Lúðvík Ingvarsson. Verkið allt. Mikið fágæti.
Upprunalegu goðorðin 36 voru þessi. Nöfnin eru höfð eins og Lúðvík Ingvarsson ritaði þau, og þegar þau höfðu tvö nöfn er skástrik á milli.
Í Austfirðingafjórðungi voru Goðorð Hofverja í Vopnafirði, Goðorð Krossvíkinga, Goðorð Þrymlinga / Njarðvíkinga, Goðorð Hrafnkelsniðja, Goðorð Fljótsdæla, Goðorð Hofverja í Álftafirði, Goðorð Hrollaugsniðja, Goðorð Freysgyðlinga / Svínfellinga og Goðorð Leiðylfinga.
Í Sunnlendingafjórðungi voru Dalverjagoðorð, Goðorð Hofverja á Rangárvöllum / Oddaverjagoðorð, Goðorð Hlíðverja, Flóamannagoðorð, Goðorð Mosfellinga / Haukdæla, Ölfusingagoðorð, Allsherjargoðorð, Lundarmannagoðorð og Reykhyltingagoðorð.
Í Vestfirðingafjórðungi voru Gilsbekkingagoðorð, Stafhyltingagoðorð, Mýramannagoðorð, Rauðmelingagoðorð / Hítdælagoðorð, Þórsnesingagoðorð, Hvammverjagoðorð / Snorrungagoðorð, Reyknesingagoðorð, Dýrfirðingagoðorð og Vatnsfirðingagoðorð.
Í Norðlendingafjórðungi voru Víðdælagoðorð, Vatnsdælagoðorð, Æverlingagoðorð, Goðorð Sæmundar hins suðreyska, Goðdælagoðorð, Goðorð Höfða-Þórðar, Esphælingagoðorð, Þveræingagoðorð og Reykdælagoðorð.
Frá og með 965 bætast við þessi goðorð á Norðurlandi, Möðruvellingagoðorð / Fljótamannagoðorð, Ljósvetningagoðorð og Öxfirðingagoðorð.
Sem ný eintök, forlagsband. Mikið fágæti.