Gísli Magnússon (Vísi-Gísli) # 88493

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Kaupmannahöfn
Date
1939
Condition
Binding
Gísli Magnússon (Vísi-Gísli). Ævisaga, ritgerðir, bréf. Jakob Benediktsson tók saman.
Gísli Magnússon eða Vísi-Gísli (1621 – 1696) var sýslumaður og frumkvöðull í búnaðarfræði á Íslandi. Hann var sonur Magnúsar Björnssonar lögmanns og Guðrúnar Gísladóttur. Hann lærði í Hólaskóla og síðan í Kaupmannahafnarháskóla. Hann stundaði nám í Hollandi frá 1643-1646 og dvaldist einnig í Englandi um tíma.


Hann varð sýslumaður í Múlaþingi að hluta 1649 og fékk Skriðuklaustur þar sem hann bjó. 1653 flutti hann að Hlíðarenda í Fljótshlíð og varð sýslumaður í Rangárþingi 1659. Jafnframt embættisverkum stundaði hann ýmis vísindastörf. Á Hlíðarenda gerði hann meðal annars tilraunir með kornrækt og var fyrstur manna til að rækta ýmsar matjurtir á Íslandi. Vitað er að hann hafði áhuga á að reyna kartöflurækt og í bréfi frá 1670 biður hann Björn son sinn, sem þá var við nám í Kaupmannahöfn, um að senda sér kartöflur til útsæðis en ekki er vitað til þess að neitt hafi orðið úr kartöfluræktunartilraunum hjá honum. Árið 1686 flutti hann til dóttur sinnar og tengdasonar í Skálholti þar sem hann lést tíu árum síðar úr steinsótt.


Kona Gísla var Þrúður dóttir Þorleifs sýslumanns á Hlíðarenda, Magnússonar prúða. Á meðal barna þeirra voru Guðríður, kona Þórðar Þorlákssonar biskups í Skálholti og Björn sýslumaður í Bæ á Rauðasandi, sem dó tæplega þrítugur en Guðrún Eggertsdóttir ekkja hans bjó í Bæ um langan aldur og var nafnkunn.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.