Grasaferð # 53760

Regular
4,900 kr
Sale
4,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1945
Condition
Binding
Grasaferð. Saga eftir Jónas Hallgrímsson.
Prentað sem handrit.



"Systir góð! sérðu það sem ég sé?"


Það var eitt kvöld um vorið, við komum af stekknum, að ég sagði þetta við systur mína, fimmtán vetra gamla, og klappaði saman lófunum af gleði.


"Ég veit ekki við hvað þú átt, drengur!" -- "Hvað á ég að sjá?" sagði hún rétt á eftir og sneri sér við, því ég var orðinn aftur úr og horfði þegjandi ofan í jörðina.


"Hér hefur rignt ormum í skúrinni en það var ekki það sem ég átti við."


"Þú ert skýrleiksbarn" sagði systir mín hlæjandi "og kemur alltént upp með eitthvað nýtt; við skulum tala um ormana þína seinna; en hvað var hitt sem ég átti að sjá?"


Ég var einatt vanur við hún leiddi mig á meðan ég var yngri; en nú var ég orðinn þrettán vetra gamall og þótti vera of stór til þess; samt sem áður fannst mér það alltént mesta skemmtun og vann ég mér það stundum inn með alls konar gamni og vinalátum þegar við vorum einhvers staðar á gangi.


"Leiddu mig dálítið", sagði ég og tók í höndina á henni, "annars kostar sérðu ekki það sem ég bendi þér á -- þú sérð fjallið hérna fyrir ofan okkur, gáðu nú að."


"Nei, ég sé ekki fjallið, frændi minn góður! Var það ekki annað en fjallið?"


"Og sérðu bunurnar bláu sem steypast fram af Bröttuskeið; það er eftir regnið áðan; lækirnir hafa allir vaxið og eru sumir mórauðir. Hvernig líst þér núna á fjallið?"


"Ekki nema vel," sagði systir mín, "það er fallegt og farið að verða sumarlegt; en svona lítur það út á hverjum degi; þú verður að sýna mér eitthvað meira."


"Ég er að draga þig dálítið á því sem best er; sérðu nú rindana þarna upp á Bröttuskeið sunnanverðri? Þeir eru fagurbleikir; manstu hvernig þeir eru að sjá í þurrki?"


Þetta seinasta sagði ég svo borginmannlega og með svo miklum spekingssvip að það var auðséð á öllu ég þóttist hafa sagt eitthvað merkilegt. Systir mín horfði stundarkorn á rindana og sá ég hvernig hýrnaði yfir henni.


"Þú ert mesta gersemi" sagði hún þá "og besti frændinn sem ég á -- það eru allt saman grös, það er ógn af blessuðum grösum!"

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.