Gullregn úr ljóðum Guðmundar Friðjónssonar # 61489
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Gullregn úr ljóðum Guðmundar Friðjónssonar. Jóhannes úr Kötlum tók saman.
Þegar ég heyri góðs manns getið
Þegar ég heyri góðs manns getið
glaðnar yfir mér um sinn.
Þá er eins og dögun dafni,
drýgi bjarma um himininn;
Vonum fjölgi, veður batni,
vökni af döggum jarðar kinn.
Jafnvel þó í fótspor fenni,
fjúki í skjólin heimaranns,
gott er að signa göfugmenni,
gjalda blessun minning hans,
dreifa skini yfir enni,
ilmi um brjóst hins fallna manns.
Þegar ég heyri góðs manns getið
Þegar ég heyri góðs manns getið
glaðnar yfir mér um sinn.
Þá er eins og dögun dafni,
drýgi bjarma um himininn;
Vonum fjölgi, veður batni,
vökni af döggum jarðar kinn.
Jafnvel þó í fótspor fenni,
fjúki í skjólin heimaranns,
gott er að signa göfugmenni,
gjalda blessun minning hans,
dreifa skini yfir enni,
ilmi um brjóst hins fallna manns.