Guðmundur Friðjónsson sjötugur # 66893

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1939
Condition
Binding
Guðmundur Friðjónsson sjötugur.
Úrval ljóða höfundar útgefið í tilefni afmælis höfundarins.


Guðmundur fæddist að Silalæk í Aðaldal, þar sem faðir hans, Friðjón Jónsson, var þá bóndi. Hann flutti síðar að Sandi og tók þar við búskap eftir föður sinn. Skólamenntunar naut Guðmundur í Möðruvallaskóla árin 1891-1893 og og var það eina menntun hans. Uppfrá því gerðist hann bóndi og umsvifamikill rithöfundur og stóð oft styr um hann í blöðum og tímaritum landsins. Í mörg ár hafði hann þann sið, að hann tók sig upp frá búi sínu og flutti fyrirlestra um ýmis þjóðmál eða þær hugmyndir og hugsjónir sem hann bar fyrir brjósti sér. Þótti hann stundum óvæginn við menn og málefni, enda þannig skapi farinn, að hann kunni því best að eiga ekki aðeins í baráttu við óblíða náttúru landsins.


Fyrsta kvæðabók hans kom út árið 1902 og hét Úr heimahögum. Næstu ár hélt Guðmundur uppteknum hætti, ritaði stutta þætti og sögur, orti kvæði og birti sumt af þessu hér og þar. Hann skrifaði ritgerðir um ýmis efni í blöð og tímarit. Árið 1904 gaf hann út dýrasögur: Undir beru lofti, (en hann gaf svo út aðra bók með dýrasögum árið 1938: Úti á víðavangi). Árið 1907 kom út lengsta sagan hans, Ólöf í Ási. Saga þessi hlaut misjafna dóma, þótti klúr og jafnvel ósiðleg með köflum. Guðmundur skrifaði ekki lengri sögur, enda var dýfum hans til ritstarfa þannig farið, að hann mun hafa átt örðugt með að taka fyrir ritverk, er kröfðu langrar aðsetu.


Guðmundur lagði alla ævi mikla rækt við sérkennilegan stíl sinn og málfar, er að vissu leyti minnir á og er í ætt við hið forna skáldamál. Orðgnótt hans og málfimi var oft aðdáunarverð, mjög oft snjöll, en að vísu stundum einnig langsótt.

www.wikipedia.org

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.